Ferðaskrifstofan Vesturferðir ehf. var stofnuð árið 1993 og hefur fest sig í sessi sem öflugasti ferðaskipuleggjandi og ferðaskrifstofa Vestfjarða. Eigendur Vesturferða eru um 60 mismunandi samtök, sjóðir, fyrirtæki og einstaklingar á svæðinu og er áhersla lögð á að tryggja gott samstarf á milli minni ferðaþjóna á svæðinu.
Með ferðunum okkar viljum við hjálpa ykkur að upplifa leyndardóma Vestfjarða. Hvort sem þið stefnið á gönguferð, dagsferð, helgarferð eða lengri ferð um Vestfirði, þá getum við aðstoðað ykkur með allt sem þið þurfið; samgöngur, gisting eða afþreying.
Starfsfólk:
Jón Auðun Auðunarson
Framkvæmdarstjóri
jon@vesturferdir.is
——————————
Maria Anna Maríudóttir
Sölu- og þjónustufulltrúi
Almennar ferðir og sérferðir
info@westtours.is
——————————
Karlotta Markan
Umsjónarmaður skemmtiferðaskipa
cruise@vesturferdir.is